Skip to main content

StarfA útskrifar á Hornafirði

StarfA útskrifaði 11 manns í fyrsta skipti hér á Hornafirði 14. júní síðastliðinn. Útskriftanemarnir hafa fengið fjölbreytta fræðslu á tímabilinu  en endurhæfingin hefur m.a. verið fólgin í námi á framhaldsskólastigi, starfskynningum, líkamsrækt, andlegri uppbyggingu og verklegri þjálfun, auk þess sem boðið hefur verið upp á fræðsluerindi af ýmsum toga.  Lagt er upp með að  flest úrræði séu keypt  af sérfræðingum og öðrum fagaðilum á staðnum.


Í ávarpi sem Eyjólfur Guðmundsson skólameistara FAS  flutti á útskriftinni ræddi hann um árangur hópsins og þar kom m.a. fram að flestir væru að klára um 15 til 20 einingar á tímabilinu og væru skráðir í skólann næsta haust.

StarfA – Hornafirði þakkar  fyrirtækjum sem tekið hafa þátt í starfskynningum þátttakenda og öllum kennurum fyrir þeirra vinnu.  Starfsemi sem þessi  gefur flestum sem taka þátt ný tækifæri og vonir. Fólk kemur inn í svona starf á mjög misjöfnum forsendum en reynt er að laga endurhæfingaráætlanir að þörfum hvers og eins. Ekki er reiknað með fullri starfsemi á Höfn haustið 2010 en  líklegt er að farið verði af stað með hóp þegar að ákveðinn fjöldi tilvísana hafa borist.  Þeir sem vilja vita meira um starfið geta haft samband við Erlu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra StarfA í síma 471-2938.