Skip to main content

Starfa1

Ársfundur Starfsendurhæfingar Austurlands verður haldinn mánudaginn 24. apríl kl. 13:30

Fundarstaður er í húsnæði StarfA að Miðvangi 1-3, Egilsstöðum -

Allir eru hjartanlega velkomnir

Stofnaðilar eru hvattir til að senda fulltrúa á fundinn

Dagskrá - sjá nánar.

  • Miðvangur 1-3

  • Vinnusalur á neðri hæð

  • Fundarsalur

  • Eldhúsið

  • Setkrókur

  • Stiginn

  • Frá opnun

    Velkomin á vef StarfA!

    Ársfundur Starfsendurhæfingar Austurlands 2023

    Ársfundur Starfsendurhæfingar Austurlands verður haldinn mánudaginn 24. apríl kl. 13:30

    Fundarstaður er í húsnæði StarfA að Miðvangi 1-3, Egilsstöðum

    Dagskrá:

    1. Skýrsla stjórnar
    2. Skýrsla forstöðumanns
    3. Ársreikningur liðins árs kynntur og til samþykktar
    4. Kosning til stjórnar
    5. Kosning kjörinna skoðunarmanna
    6. Önnur mál

    Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum fáum við að heyra reynslusögu tveggja þátttakenda af veru sinni í StarfA.

    Allir eru hjartanlega velkomnir

    Stofnaðilar eru hvattir til að senda fulltrúa á fundinn

    Ráðgjafi í starfsendurhæfingu

    Stjórn Starfsendurhæfingar Austurlands (StarfA) auglýsir eftir ráðgjafa í starfsendurhæfingu.

    Hlutverk Starfsendurhæfingr Austurlands er að veita einstaklingum starfsendurhæfingu sem hafa verið utan vinnumarkaðar um tíma, s.s. vegna veikinda, slysa eða félagslegra aðstæðna, sem eru að vinna að endurkomu út á vinnumarkaðinn.

    StarfA starfar eftir lögum um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða.

    Um er að ræða 50% stöðu.

    Helstu verkefni:

    • Ráðgjöf, stuðningur og eftirfylgd við þátttakendur í endurhæfingu
    • Greiningar- og meðferðarvinna s.s. gerð endurhæfingaráætlana, tilvísanir og greinagerðir.
    • Umsjón og kennsla sjálfseflandi námskeiða og hópastarf
    • Samstarf við samstarfsaðila og tengslastofnanir
    • Þróunarstarf

    Menntun og hæfnikröfur:

    • Háskólamenntun á sviði heilbrigðis-og/eða félagsvísinda sem nýtist í starfi
    • Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt
    • Fagleg vinnubrögð og metnaður í starfi
    • Góðir samstarfshæfileikar
    • Leiðtogahæfileikar og jákvætt viðmót
    • Reynsla af ráðgjöf á sviði starfsendurhæfingar er æskileg.

    Laun eru greidd samkvæmt gildandi kjarasamning viðkomandi stéttarfélags og samtaka atvinnulífsins.

    Umsóknarfrestur er til og með 25. ágúst 2022.  Æskilegt að starfsmaður geti hafið störf 15. september eða eftir samkomulagi.

    Umsókn berist til Starfsendurhæfingar Austurlands, Miðvangi 1-3, 700 Egilsstaðir eða á netfang Þetta netfang er varið fyrir ruslpósti. Þú þarft að virkja Javascript til að sjá það.

    Nánari upplýsingar veitir Linda E. Pehrsson í síma 852 5232/ 471 2938. 

    Starfsmaður óskast !

    starfa10Það er okkur mikil ánægja að óska eftir starfsmanni í 50% starf hjá Starfsendurhæfingu  Austurlands. Spennandi tækifæri fyrir áhugasama sem vilja leggja sitt að mörkum og styðja fólk á vinnumarkað, móta og hafa áhrif á þróun starfsendurhæfingar á Austurlandi.

    Lesa meira

    Við erum að byrja !

    starfa12Starfsemin hefst að nýju að loknu sumarfríi mánudaginn 19.ágúst kl. 9:00 með hópfundi og léttum morgunverði.

    Stundaskráin komin inn.

    Hlökkum til að sjá ykkur