|
StarfA útskrifar á Hornafirði |
|
|
|
|
Miðvikudagur, 23. Júní 2010 14:47 |
|
StarfA útskrifaði 11 manns í fyrsta skipti hér á Hornafirði 14. júní síðastliðinn. Útskriftanemarnir hafa fengið fjölbreytta fræðslu á tímabilinu en endurhæfingin hefur m.a. verið fólgin í námi á framhaldsskólastigi, starfskynningum, líkamsrækt, andlegri uppbyggingu og verklegri þjálfun, auk þess sem boðið hefur verið upp á fræðsluerindi af ýmsum toga. Lagt er upp með að flest úrræði séu keypt af sérfræðingum og öðrum fagaðilum á staðnum. Í ávarpi sem Eyjólfur Guðmundsson skólameistara FAS flutti á útskriftinni ræddi hann um árangur hópsins og þar kom m.a. fram að flestir væru að klára um 15 til 20 einingar á tímabilinu og væru skráðir í skólann næsta haust.
StarfA – Hornafirði þakkar fyrirtækjum sem tekið hafa þátt í starfskynningum þátttakenda og öllum kennurum fyrir þeirra vinnu. Starfsemi sem þessi gefur flestum sem taka þátt ný tækifæri og vonir. Fólk kemur inn í svona starf á mjög misjöfnum forsendum en reynt er að laga endurhæfingaráætlanir að þörfum hvers og eins. Ekki er reiknað með fullri starfsemi á Höfn haustið 2010 en líklegt er að farið verði af stað með hóp þegar að ákveðinn fjöldi tilvísana hafa borist. Þeir sem vilja vita meira um starfið geta haft samband við Erlu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra StarfA í síma 471-2938.
|
|
Brot af því besta á útskrift StarfA |
|
|
|
|
Þriðjudagur, 22. Desember 2009 12:23 |
Það var fjölbreytt dagskrá á báðum útskriftum StarfA í Fjarðabyggð og Fljótsdalshéraði sl. fimmtudag. Hér má sjá brot af því besta í Fjarðabyggð og hér Fljótsdalshéraði.  |
|
Þriðjudagur, 22. Desember 2009 08:14 |
|
Fréttamaður RÚV var á staðnum þegar útskrift fór fram á Fljótsdalshéraði sl. fimmtudag. Hann tók tali framkvæmdastjórann Erlu Jónsdóttur og þátttakendurna Eirík Einarsson og Margréti Andrésdóttur. Hér má finna upptöku af viðtalinu og ef þið viljið ekki hlusta á allan þáttinn má einfaldlega "spóla" fram á nítjándu mínútu. |
|
StarfA útskrifar í fyrsta skipti |
|
|
|
|
Mánudagur, 21. Desember 2009 16:01 |
|
Tímamót urðu í sögu Starfsendurhæfingar Austurlands (StarfA) í síðustu viku en þá voru útskrifaðir nemendur í fyrsta skipti. Alls luku 21 nemandi starfsendurhæfingu, tólf í Fjarðabyggð og níu á Fljótsdalshéraði. Flestir stefna á frekara nám. Fimmtudagurinn í síðustu viku markaði tímamót í sögu StarfA sem hóf starfsemi sína í byrjun nóvember árið 2007 en þá var Erla Jónsdóttir ráðin framkvæmdastjóri og var auk þess eini starfsmaður StarfA. Myndaðir voru hópar á Fljótsdalshéraði, skömmu síðar í Fjarðabyggð og loks var myndaður hópur á Hornafirði fyrr á þessu ári. Alls byrjuðu þrjátíu og átta í starfsendurhæfingu á Mið-Austurlandi snemma árs 2008 og núna, tæpum tveimur árum síðar, hafa tuttugu og þrír þátttakendur lokið endurhæfingunni en tveir voru útskrifaðir síðastliðið vor. |
|
Lesa meira...
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 5 |